Viðskiptavinur

Gunnars ehf.

Heimasíða

gunnars.is

Verklýsing

Hönnun á vefsíðu í stöðluðu umhverfi.

Gunnars framleiðir majones, sósur og ídýfur fyrir smásölu og veitingageirann.

Fyrirtækið var upphaflega stofnað árið 1960 og hefur alla tíð verið starfrækt í Hafnarfirði. Í dag starfa tæplega 20 manns hjá fyrirtækinu sem leggja mikinn metnað í framleiðslu á gæðavörum og góða þjónustu við viðskiptamenn.

Það er okkur sönn ánægja að hafa verið valin Framúrskarandi Fyrirtæki 2017 af Creditinfo og Fyrirmyndarfyrirtæki í rekstri 2017 af Keldunni og Viðskiptablaðinu. Einungis í kringum 2% fyrirtækja á Íslandi standast þær kröfur sem gerðar eru til að hljóta þessa titla og við erum að vonum afar ánægð með að vera í þeim góða hóp.