Lausnir · Vefsida.app
App fyrir netverslanir Verslunin þín í símanum
- iPhone og Android
- Undir þínu vörumerki
- WooCommerce og Shopify
Greitt í greiðsluferli verslunarinnar
Af hverju app?
Vefurinn nær í nýja viðskiptavini. Appið fær þá til að koma aftur.
Á heimaskjánum
Verslunin er einum smelli frá, með vörur, körfu og aðgang viðskiptavinarins.
Beint samband
Sendu tilboð, nýjar vörur og áminningar í símann til þeirra sem hafa samþykkt tilkynningar.
Sjálfvirk skilaboð
Áminningar um yfirgefnar körfur, vörur sem koma aftur á lager og stöðu pantana.
Ekkert tvöfalt utanumhald
Vörur, verð, birgðir og pantanir koma úr núverandi verslun. Þú uppfærir á einum stað.
Fyrir hverja?
Hentar þetta þinni verslun?
Appið hentar vel ef
- þú ert með netverslun á WooCommerce eða Shopify
- viðskiptavinir kaupa hjá þér oftar en einu sinni
- þú setur reglulega inn nýjar vörur eða tilboð
- þú vilt ná til viðskiptavina án þess að treysta eingöngu á auglýsingar og tölvupóst
Annað hentar betur ef
þú ert ekki enn með netverslun. Byrjaðu á versluninni, við smíðum hana og sjáum um hana.
Netverslun hjá Vefsíðuþú þarft bókanir, vildarklúbb, tengingar við eigin kerfi eða app frá grunni. Það smíðar teymi Novamedia.
Sérsmíðuð öpp hjá Novamedia
Svona virkar þetta
Frá netverslun að appi í fjórum skrefum
- 1
Skönnun
Þú sendir okkur slóð verslunarinnar. Við lesum inn merki, liti og vörur og sýnum þér appið áður en þú ákveður nokkuð.
- 2
Tenging
WordPress-tengill eða Shopify-app tengir verslunina. Vörur, karfa og greiðsla verða áfram í versluninni.
- 3
Hönnun
Þú raðar forsíðu, valmynd og eiginleikum og skoðar allar breytingar í eigin síma.
- 4
Útgáfa
Smíði, tákn, kynningarsíða og skjámyndir eru undirbúin og appið gefið út á þínum Apple- og Google-aðgöngum.
Hver gerir hvað
Eitt teymi, þrjú hlutverk
Verð
Sér viðbót með eigin verði
Verð eru án vsk. Gjöld Apple (99 USD á ári) og Google (25 USD einu sinni) greiðast beint til þeirra.
Áskrift hjá Vefsida.app
19.900 kr./ mán.
App19.900 kr. / mán.
App fyrir iPhone og Android, ýtitilkynningar og sjálfvirkar pöntunartilkynningar.
Vöxtur34.900 kr. / mán.
Allt í App, auk markhópa, tímasettra sendinga og sjálfvirkra herferða.
- Ein áskrift fyrir bæði App Store og Google Play
- Uppsetning: tákn, opnunarskjár, kynningarsíða og innsending
- Ókeypis forskoðun áður en þú ákveður
Spurningar um appið
Nei. Appið er sér viðbót hjá Vefsida.app með eigin verði og skilmálum.
Nei. Vefsida.app virkar með flestum WooCommerce- og Shopify-verslunum, óháð því hver smíðaði þær eða hýsir. Ef verslunin er hjá okkur aðstoðum við við tenginguna.
Já. Appið er gefið út á þínum eigin Apple Developer Program- og Google Play Console-aðgöngum, svo þú átt kynningarsíðuna og umsagnirnar. Þú færð leiðsögn við uppsetninguna og gjöldin greiðast beint til Apple og Google.
Þegar verslunin er tengd og hönnunin tilbúin tekur smíðin innan við sólarhring. Yfirferðartími Apple og Google er breytilegur og samþykki er ekki hægt að tryggja, en unnið er úr öllum athugasemdum.
Samhæfisathugun fer yfir verslunina áður en þú greiðir. Flestar hefðbundnar WooCommerce- og Shopify-uppsetningar virka beint; óvenjulegar greiðslu- eða vöruviðbætur eru merktar til yfirferðar.
Áskriftin gildir út greitt tímabil og appið virkar áfram í 14 daga eftir það. Appið helst í App Store og Google Play á þínum aðgangi, stillingarnar eru geymdar og þú getur virkjað aftur hvenær sem er.
Viltu app fyrir verslunina?
Segðu okkur frá versluninni og við förum yfir hvort app hentar og hvað þarf til.




