Gervigreind og sjálfvirkni

Gervigreind sem vinnur. Ekki bara sem talar.

Við setjum upp AI þjónustufulltrúa á íslensku, tengjum kerfin sem þú notar og tökum handavinnuna út úr daglegum rekstri. Mánaðarverð eða fast verð, og þú veist alltaf kostnaðinn fyrir fram.
Sjá verð

Spjallið hérna niðri í horninu er Spjallbox. Prófaðu það.

Þrjár leiðir

Byrjaðu þar sem tíminn fer.

AI þjónustufulltrúi

Spjallbox er okkar eigið kerfi: netspjall, tölvupóstur og samfélagsmiðlar í einu innhólfi, með gervigreind sem þekkir fyrirtækið.

  • Svardrög á íslensku út frá ykkar gögnum
  • Ekkert sent nema þið viljið
  • Netspjall, tölvupóstur, Messenger, Instagram og WhatsApp
  • Gögn hýst innan EES

Frá 3.900 kr. á aðgang á mánuði

Skoða Spjallbox

Sjálfvirkni og tengingar

Pantanir, reikningar, bókanir og skráningar sem flæða sjálfkrafa á milli kerfa — í stað þess að einhver slái þær inn.

  • Bókhald, greiðslur og vefverslun
  • CRM, póstlistar og bókunarkerfi
  • Sjálfvirkar tilkynningar og verkferlar
  • Við vöktum tengingarnar eins og vefinn

Á tímagjaldi (19.900 kr./klst.) eða föstu verði

Sjá tengingar

Sýnileiki í gervigreind

Sífellt fleiri spyrja ChatGPT, Gemini og Perplexity í stað Google. Við hjálpum fyrirtækinu þínu að koma upp.

  • Tæknilegur grunnur fyrir AI leit
  • Skipulögð gögn (schema)
  • Efni sem svarar spurningum viðskiptavina
  • Mælingar á umferð frá gervigreind

Fast verð eftir umfangi, eða sem hluti af SEO í markaðssetningu

Nánar um AI sýnileika

Tengingar

Kerfin þín, tengd saman.

Við tengjum vefinn við kerfin sem þú notar nú þegar. Einfaldar tengingar rúmast oft innan þróunartímanna í pakkanum; stærri verk fá fast verð eða eru unnin á tímagjaldi, og þú samþykkir verðið áður en vinna hefst.

  • dk
  • Payday
  • Greiðslugáttir
  • Shopify
  • WooCommerce
  • Cartico
  • HubSpot
  • Mottó
  • Spjallbox
  • Bókun
  • Noona
  • Zapier, Make og n8n
  • Önnur kerfi með API

Dæmi um það sem við setjum upp

  • Pöntun beint í bókhaldið

    Pöntun í vefverslun býr til reikning í bókhaldskerfinu og birgðastaðan uppfærist sjálf.

  • Fyrirspurn beint í CRM

    Fyrirspurn af vefnum fer beint í CRM, á réttan starfsmann, með staðfestingu til viðskiptavinarins.

  • Bókun án handavinnu

    Bókun á vefnum fer í dagatalið, sendir áminningu og skráir viðskiptavininn á póstlista ef hann vill.

Ferlið

Frá hugmynd í virka lausn.

  1. 01

    Greining

    Við förum yfir hvar tíminn fer og hvað borgar sig að gera sjálfvirkt.

  2. 02

    Tillaga og verð

    Þú færð skýra tillögu og verð áður en nokkur vinna hefst.

  3. 03

    Uppsetning

    Við setjum upp, prófum með ykkar gögnum og kennum teyminu á lausnina.

  4. 04

    Rekstur og vöktun

    Við vöktum lausnina og bætum hana jafnt og þétt, eins og vefinn.

Heiðarleg gervigreind

Þið ráðið ferðinni.

Manneskja í lykkjunni

Gervigreindin skrifar drög. Fólkið ykkar ákveður hvað er sent.

Ykkar gögn

Svörin byggja á ykkar efni og upplýsingum — ekki á getgátum.

Engin töfraloforð

Við segjum hreint út hvar gervigreind hjálpar og hvar hún gerir það ekki.

Íslenskt teymi

Þú talar við fólkið sem setur lausnina upp, á íslensku.

Þarftu stærri sérsmíði?

Sérsmíðuð kerfi, mínar síður og flóknar samþættingar vinnur Novamedia ehf., sem rekur Vefsíðu. Sama teymi, sama tímagjald.

Skoða Novamedia

Nýtt · MCP-tenging

Talaðu við vefinn þinn. Hann svarar og framkvæmir.

Kerfin okkar tengjast Claude og ChatGPT. Þú segir á mannamáli hvað á að gera, gervigreindin sýnir þér breytinguna og þú samþykkir. vCore sér um vefinn sjálfan, vConnector um verslunina og bókhaldið og vMarketing um auglýsingarnar.

MCP er opinn staðall sem tengir gervigreind við kerfin þín. Hún fær aðeins þær heimildir sem þú velur.

vCore. Vefumsjónarkerfið okkar. Hér breytir þú vefnum: texta, fréttum, síðum, myndum, þýðingum og leitarvélaefni.

Fylgir flestum vefpökkum

Þú

Settu inn frétt um jólaopnunina á íslensku og ensku.

Claude · vCore

Fréttin er komin inn sem drög á báðum tungumálum og forskoðunartengillinn er tilbúinn. Viltu lesa hana yfir áður en ég birti?Opna forskoðun
  • Ekkert birt án samþykkis

    Gervigreindin sýnir breytinguna og bíður eftir þér áður en nokkuð fer á vefinn.

  • Saga og afturköllun

    Hver breyting er skráð og fyrri útgáfu má endurheimta.

  • Þínar heimildir

    Gervigreindin sér aðeins það sem notandinn sjálfur hefur aðgang að.

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið?

  • Nei, ekki nema þú viljir það. Spjallbox skrifar svardrög út frá ykkar gögnum og starfsfólkið les þau yfir og sendir. Sjálfvirk svör eru bara notuð þar sem þið hafið ákveðið það, til dæmis um opnunartíma eða stöðu pöntunar.

  • Gögnin í Spjallbox eru hýst innan Evrópska efnahagssvæðisins. Í tengingum og sjálfvirkni förum við yfir með þér hvaða gögn fara hvert, og notum aðeins það sem þarf til að verkið virki.

  • Nei. Spjallbox virkar á hvaða vef sem er og tengingar getum við sett upp við flest kerfi sem bjóða upp á API. Ef vefurinn er hjá okkur er þetta þó einfaldast, því þá sjáum við um allt á einum stað.

  • Minni tengingar, til dæmis við bókunar-, greiðslu- eða póstlistakerfi, rúmast oft innan Stærri fyrirtækjavefs, Netverslunar eða Ferðavefs. Stærri sérsmíði — sérhönnuð kerfi, flóknar samþættingar eða hugbúnaðarlausnir — vinnur Novamedia, sem Vefsíða er hluti af og sérhæfir sig í slíkum verkefnum.

    Skoða Novamedia

Hvar fer tíminn hjá ykkur?

Segðu okkur í nokkrum orðum hvað tekur mestan tíma og við komum með tillögu að lausn — án skuldbindingar.

Netfang er nauðsynlegt. Sími er valfrjáls.

Valið: Gervigreind og tengingar

Við notum upplýsingarnar aðeins til að svara þér. Persónuvernd