vCore · Vefumsjónarkerfi

Þú uppfærir efnið. Vefurinn heldur útlitinu.

vCore er vefumsjónarkerfið sem fylgir vefjum sem við smíðum og rekum. Starfsfólkið þitt uppfærir fréttir, síður, myndir og eyðublöð í skýru stjórnborði, án þess að snerta kóða.
Skoða kerfið
  • Á íslensku og ensku
  • Aðgangur aðeins með boði
  • Hver vefur er aðskilinn
Stjórnborðið er bæði á íslensku og ensku. Skiptu á milli til að sjá.

Hvernig það virkar

Tveir hlutar, skýr verkaskipting.

Vefurinn og vCore vinna saman en eru aðskilin. Vefurinn er sér síða sem les útgefið efni úr kerfinu. Þannig helst útlitið eins og það var hannað, sama hver skrifar.

Það sem þú stýrir

Í vCore

  • Texti og fyrirsagnir
  • Myndir og skjöl
  • Síður, fréttir, viðburðir og verkefni
  • Eyðublöð og innsendingar
  • Valmyndir og áframsendingar

Það sem við smíðum

Í vefnum

  • Hönnun og uppsetning
  • Blokkir og efniseiningar
  • Ný virkni og tengingar
  • Hýsing, lén og rekstur

Breyting á texta eða mynd birtist á vefnum þegar hún hefur verið gefin út. Breyting á útliti eða ný virkni fer í gegnum vefverkefnið hjá okkur.

Breytt á vefnum

Smelltu á textann og breyttu honum á síðunni sjálfri

Forskoðunin sýnir lifandi vefinn með óbirtum breytingum. Smelltu inn í svæði til að breyta því og sjáðu nákvæmlega hvernig síðan lítur út, á tölvu, spjaldtölvu og síma, áður en hún fer í loftið.

  • Forskoðun fyrir birtingu

    Þú vinnur í uppkasti. Gestir vefsins sjá ekkert fyrr en þú gefur út.

  • Tengill fyrir aðra

    Sendu forskoðunartengil á einhvern sem er ekki með aðgang. Hann rennur út og má afturkalla hvenær sem er.

  • Athugasemdir á réttum stað

    Festu athugasemd við tiltekinn reit í forskoðun og nefndu samstarfsfólk sem þarf að bregðast við.

Síður úr blokkum

Settu síður saman úr tilbúnum blokkum

Hver síða er byggð úr blokkum sem eru hannaðar fyrir vefinn þinn. Þú velur blokk, fyllir í efnið og útlitið fylgir með. Breytingin sést strax í forskoðuninni við hliðina.

  • Endurnýtanlegir hlutar

    Búðu til hluta einu sinni, til dæmis ákall eða tengiliðaupplýsingar, og notaðu hann á mörgum síðum.

  • Síðusniðmát

    Vistaðu uppbyggingu síðu sem sniðmát og stofnaðu ný drög út frá henni.

  • Eldri útgáfur og ruslakarfa

    Fyrri útgáfur eru geymdar. Færslu má afrita, og það sem fer í ruslakörfuna má endurheimta.

Einingar og blokkir

Hver vefur fær það sem hann þarf.

Einingar eru tegundir efnis, til dæmis fréttir eða starfsfólk. Blokkir eru byggingareiningar síðu. Vefurinn kveikir aðeins á því sem hann notar.

Einingar

  • Síður
  • Fréttir
  • Þjónustur
  • Starfsfólk
  • Staðsetningar
  • Algengar spurningar
  • Umsagnir
  • Eyðublöð
  • Viðburðir
  • Verkefni
  • Netverslun

Heiti eininga má aðlaga, til dæmis „Starfsfólk“ sem „Teymið“.

Blokkir

  • Forsíðuborði
  • Texti
  • Mynd og texti
  • Spjöld
  • Eiginleikar
  • Tölfræði
  • Merki
  • Umsagnir
  • Teymi
  • Þjónustur
  • Spurningar
  • Myndasafn
  • Ákall
  • Eyðublað
  • Fréttalisti
  • Verkefnalisti
  • Hafa samband
  • Innfelling

Valmyndir, áframsendingar og myndasafn fylgja hverjum vef.

Útgáfa

Frá uppkasti til birtingar

  1. 01

    Uppkast

    Þú skrifar og breytir í uppkasti. Ekkert sést á vefnum á meðan.

  2. 02

    Forskoðun

    Þú sérð síðuna eins og hún mun líta út og getur sent öðrum tengil.

  3. 03

    Yfirlestur

    Ef þess er óskað þarf yfirlesari að samþykkja áður en birt er.

  4. 04

    Birting

    Þú gefur út og breytingin fer á vefinn. Breytist slóðin verður til áframsending.

Myndasafn

Allar myndir og skjöl á einum stað

Hlaðaðu upp myndum og skjölum, leitaðu eftir heiti eða alt-texta og sjáðu strax hvar hver mynd er notuð. Myndir sem vantar alt-texta eða eru ónotaðar finnurðu með einum smelli.

  • Alt-texti fyrir aðgengi

    Gervigreind getur stungið upp á alt-texta þar sem hann vantar. Hún skrifar aldrei yfir texta sem er þegar til.

  • Sjáðu hvar mynd er notuð

    Áður en þú skiptir um eða eyðir mynd sérðu hvaða síður og fréttir nota hana.

  • Möppur og merki

    Raðaðu skrám í möppur, merktu þær og skráðu ljósmyndara eða heimild.

Valmyndir og slóðir

Valmyndir sem þú stýrir, slóðir sem brotna ekki

Breyttu valmyndum vefsins, raðaðu atriðum og bættu við undiratriðum. Ef slóð á birtri síðu breytist býr kerfið sjálft til áframsendingu, svo gamlir tenglar og leitarvélar rata áfram á réttan stað.

  • Sjálfvirkar 301-áframsendingar

    Þegar birt slóð breytist verður til varanleg áframsending. Forsíðan sjálf verður aldrei uppruni slíkrar áframsendingar.

  • 404-síður skráðar

    Kerfið skráir slóðir sem ekki fundust og stingur upp á áframsendingu.

  • Innri tenglar skannaðir

    Hægt er að skanna innri tengla vefsins sérstaklega og finna þá sem vísa hvergi.

Leitarvélabestun

Sjáðu hvað þarf að laga, og í hvaða röð

SEO-síðan safnar saman titlum, lýsingum og því sem vantar á öllum síðum og færslum, gefur einkunn og raðar verkefnunum. Þú veist alltaf hvar best er að byrja.

  • Gervigreind fyllir í eyðurnar

    Gervigreind getur skrifað tillögur að titlum og lýsingum í tóma reiti. Það sem þegar hefur verið skrifað er látið í friði.

  • Mælingar með Stats

    Vefmælingar má tengja við Stats svo þú sjáir umferðina um vefinn.

  • Yfirlit og heilsufar

    Yfirlitið sýnir stöðu vefsins, nýlegar breytingar, drög og virkni. Heilsufar vefsins er skoðað reglulega.

Tungumál

Sjö tungumál. Þú kveikir á þeim sem þú notar.

Vefur getur verið á íslensku, ensku, þýsku, spænsku, dönsku, frönsku og pólsku. Þýðingastaðan sýnir hvort þýðing vantar, sé úrelt eða í lagi, og þú getur unnið með tvö tungumál hlið við hlið.

  • ISÍslenska
  • ENEnska
  • DEÞýska
  • ESSpænska
  • DADanska
  • FRFranska
  • PLPólska

Þýðingastaða

Dæmi

  • ForsíðaENÍ lagi
  • Um okkurENÚrelt
  • ÞjónustaENÍ lagi
  • StarfsfólkDEVantar
  • Hafa sambandDEÚrelt

Gervigreind sem virðir textann þinn

  • Getur skrifað þýðingu eða uppkast í tóma reiti
  • Skrifar aldrei yfir texta sem ritstjóri hefur sett inn
  • Sama regla gildir um SEO-texta og alt-texta á myndum
  • Ef gervigreind er ekki tengd gerist ekkert: ekkert er skrifað og ekkert látið líta út fyrir að hafa tekist

Eyðublöð

Eyðublöð og innsendingar

  • Eyðublöð í skrefum

    Búðu til eyðublöð, líka í mörgum skrefum. Reitur getur birst aðeins ef skilyrði er uppfyllt.

  • Pósthólf fyrir innsendingar

    Innsendingar safnast í pósthólf í kerfinu og má merkja sem rusl. Tilkynning getur farið í tölvupósti við hverja innsendingu.

  • Vörn gegn ruslpósti

    Turnstile frá Cloudflare ver eyðublöðin gegn sjálfvirkum innsendingum.

  • Viðhengi eru einkaskrár

    Skrár sem fylgja innsendingu fá ekki opinbera slóð og eru aðeins sóttar af þeim sem hafa aðgang.

Aðgangur

Aðgangur með boði og skýr hlutverk.

Nýskráning er lokuð. Stjórnandi vefsins býður fólki inn og velur hlutverk. Aðgang má takmarka við ákveðnar einingar eða tungumál, til dæmis svo þýðandi vinni aðeins í ensku.
  1. Lesaðgangur

    Sér efnið og stöðu vefsins en breytir engu.

  2. Yfirlesari

    Les yfir og samþykkir birtingu þegar krafist er yfirlestrar.

  3. Ritstjóri

    Skrifar og breytir efni, hleður upp myndum og gefur út.

  4. Stjórnandi

    Býður fólki, velur hlutverk og takmarkar aðgang á vefnum.

Öryggi við innskráningu

  • Hver notandi sér aðeins þá vefi sem honum hefur verið boðið á
  • Lykilorð eru að lágmarki 10 stafir
  • Innskráning læsist tímabundið eftir of margar tilraunir
  • Aðgerðir eru skráðar í aðgerðaskrá

Fyrir hvern

Hentar vCore ykkur?

Hentar vel ef

  • starfsfólk á að geta uppfært vefinn án þess að snerta kóða
  • þið birtið reglulega fréttir, viðburði eða verkefni
  • vefurinn er á fleiri en einu tungumáli
  • fleiri en einn kemur að efninu og þið viljið yfirlestur
  • útlitið á að haldast faglegt, sama hver skrifar

Hentar síður ef

  • þið viljið hanna útlit frá grunni í vafranum
  • þið viljið búa til nýjar efnistegundir sjálf

Þarftu vefverslun?

Skoða netverslanir

Fyrir tæknifólk

Hvernig vCore er byggt

Hér förum við nánar í aðskilnað, öryggi og rekstur. Þetta er það sem tölvudeildin eða öryggisstjórinn spyr yfirleitt um.
API-lyklar
  • Opinber lesning
  • Lesning á netþjóni
  • Vefkrókur
  • Sýndur einu sinniGeymdur sem tætigildi
  • Aðskilnaður vefja

    Vefir deila ekki efni. Fyrirspurn, stofnun, breyting og eyðing eru allar bundnar við þann vef sem notandinn hefur aðgang að. Það er framfylgt í kerfinu sjálfu, ekki bara falið í valmynd.

  • Hlutverk og takmarkanir

    Hlutverk á vef eru lesaðgangur, yfirlesari, ritstjóri og stjórnandi. Tóm takmörkun þýðir fullan aðgang að því sem hlutverkið leyfir. Starfsfólk Vefsíðu og stjórnendur vinnusvæðis eru ekki bundnir takmörkunum.

  • Innskráning

    Lykilorð eru að lágmarki 10 stafir og innskráning læsist tímabundið eftir of margar tilraunir. Tvíþætt auðkenning er skylda fyrir starfsfólk Vefsíðu og stjórnendur vinnusvæðis.

  • Einkaskrár

    Einkaskrár, til dæmis viðhengi úr eyðublöðum, eru í lokuðu geymslusvæði og sóttar með skammtímaleyfi. Þær fá aldrei opinbera slóð sem hægt er að giska á.

  • API-lyklar

    Lykill er sýndur einu sinni og aðeins tætigildi (hash) hans er geymt. Hver lykill tilheyrir einum vef, getur runnið út og er af einni af þremur gerðum: opinber lesning, lesning á netþjóni eða vefkrókur.

  • Vefkrókar og leyndarmál

    Vefkrókar eru undirritaðir og þeim er hafnað ef þeir eru of gamlir, svo ekki er hægt að spila þá aftur. Forskoðunartenglar og leyndarmál vefsins eru meðhöndluð eins: aðeins tætigildið er geymt.

  • Opinbert API og forskoðun

    Opinbera API-ið skilar aldrei drögum, efni í ruslakörfu eða efni annars vefs. Forskoðunarramminn birtir aðeins þau lén sem vefurinn er stilltur á.

  • Upphleðsla og eyðing

    Skrár eru prófaðar eftir tegund og stærð við upphleðslu. Ekki er hægt að eyða efni varanlega fyrir slysni. Varanleg eyðing er sérstök aðgerð.

  • Hýsing og lén

    Nýr vefur getur byrjað á vinnuslóð á vefsida.dev og færst síðar á eigið lén. Hýsing er tengd við verkefnið. Kerfið stofnar ekki sjálfkrafa nýtt hýsingarverkefni fyrir hvern viðskiptavin.

Tengingar sem þarf að setja upp

Póstþjónusta
Án hennar fer enginn tölvupóstur, en athugasemdir og innsendingar vistast samt.
Turnstile
Vörn gegn sjálfvirkum innsendingum er virk þegar Turnstile-lyklar hafa verið settir.
Gervigreind
Án tengingar gerist ekkert og ekkert er látið líta út fyrir að hafa tekist.

Afrit og endurheimt

Við segjum nákvæmlega hvað er virkt í dag og hvað ekki.

Virkt

  • Næturlegt dulkóðað afrit af gagnagrunninum fer í aðra geymslu
  • Afritið er prófað á hverju kvöldi
  • Dagleg afrit gagnagrunnsþjónustunnar eru virk
  • Myndir og skrár eru speglaðar á hverju kvöldi

Ekki virkt í dag

  • Point-in-time recovery, það er að spóla gagnagrunninum aftur á tiltekna sekúndu, er ekki kveikt
  • Endurheimt beint inn á framleiðslugagnagrunninn hefur ekki verið reynd
  • Spegill mynda og skráa er á sama Cloudflare-aðgangi og uppruninn, svo hann bjargar ekki ef sá aðgangur týnist

Gott að vita

Það sem þarf að vera ljóst áður en þú ákveður.

Ritstjórinn stýrir efninu

Ritstjórinn stýrir efni innan þeirra blokka og eininga sem vefurinn var smíðaður með. Nýtt útlit, ný blokk eða ný eining er þróun hjá okkur, ekki stilling sem kveikt er á.

Vefurinn og kerfið eru tveir hlutar. Breyting á texta eða mynd birtist á vefnum eftir útgáfu. Breyting á útliti eða ný virkni fer í gegnum vefverkefnið.

Utan kerfisins í dag

  • Frjáls teikning á síðu, eins og í Elementor
  • Smíði nýrra efnistegunda í vafranum
  • Innskráning með Google eða Microsoft

Áframhaldandi þróun

Byggt til að vaxa með vefnum.

Nýja einingu eða blokk má bæta við án þess að snerta aðra vefi. Þetta er ekki hluti af grunninum í dag, en það má bæta því við án þess að skipta um kerfi, því hver vefur kveikir aðeins á því sem hann notar.
  • Fleiri einingar og blokkir

    Eftir þörfum hvers vefs, til dæmis starfsauglýsingar, námskeið eða skjalasafn.

  • Tímasett birting

    Færsla fer í loftið á fyrirfram ákveðnum tíma.

  • Sterkari endurheimt

    Point-in-time recovery og reynd endurheimt á framleiðslugögnum.

  • Fyrirtækjainnskráning

    Innskráning með fyrirtækjaaðgangi, ef viðskiptavinur krefst þess.

  • Bókunarkerfi

    Sem sér eining fremur en viðbót við núverandi eyðublöð.

  • Frjálsari síðusmíði

    Ef viðskiptavinur á að geta búið til nýjar efnistegundir án þróunar.

Nýtt · MCP-tenging

Talaðu við vefinn þinn. Hann svarar og framkvæmir.

Kerfin okkar tengjast Claude og ChatGPT. Þú segir á mannamáli hvað á að gera, gervigreindin sýnir þér breytinguna og þú samþykkir. vCore sér um vefinn sjálfan, vConnector um verslunina og bókhaldið og vMarketing um auglýsingarnar.

MCP er opinn staðall sem tengir gervigreind við kerfin þín. Hún fær aðeins þær heimildir sem þú velur.

vCore. Vefumsjónarkerfið okkar. Hér breytir þú vefnum: texta, fréttum, síðum, myndum, þýðingum og leitarvélaefni.

Fylgir flestum vefpökkum

Þú

Settu inn frétt um jólaopnunina á íslensku og ensku.

Claude · vCore

Fréttin er komin inn sem drög á báðum tungumálum og forskoðunartengillinn er tilbúinn. Viltu lesa hana yfir áður en ég birti?Opna forskoðun
  • Ekkert birt án samþykkis

    Gervigreindin sýnir breytinguna og bíður eftir þér áður en nokkuð fer á vefinn.

  • Saga og afturköllun

    Hver breyting er skráð og fyrri útgáfu má endurheimta.

  • Þínar heimildir

    Gervigreindin sér aðeins það sem notandinn sjálfur hefur aðgang að.

Algengar spurningar um vCore

  • Nei. Útlitið er hannað og smíðað með vefnum. Í vCore fyllir þú í þær blokkir og einingar sem vefurinn styður. Ef þig vantar nýja blokk eða nýtt útlit smíðum við það fyrir þig.

  • Já, stjórnborðið er bæði á íslensku og ensku. Sjálfur vefurinn getur verið á allt að sjö tungumálum.

  • Nýskráning er lokuð. Stjórnandi vefsins sendir boð og velur hlutverk: lesaðgang, yfirlesara, ritstjóra eða stjórnanda. Aðgang má takmarka við ákveðnar einingar eða tungumál.

  • Nei. Gervigreind skrifar aðeins í tóma reiti, hvort sem það er þýðing, SEO-texti eða alt-texti. Ef hún er ekki tengd gerist ekkert.

  • Hún fer í ruslakörfu og má endurheimta. Varanleg eyðing er sérstök aðgerð, og eldri útgáfur eru líka geymdar.

  • Já, með forskoðunartengli. Hann rennur sjálfgefið út eftir 7 daga, mest eftir 30, og má afturkalla hvenær sem er. Sá sem fær tengilinn þarf ekki að vera innskráður.

  • Já. vCore er með netverslunareiningu fyrir sölu til einstaklinga og fyrirtækja, sem við kveikjum á fyrir þá vefi sem þurfa hana. Við smíðum líka netverslanir á WooCommerce, Shopify og fleiri kerfum, og vConnector tengir verslunina við bókhaldið. Við förum yfir með þér hvaða leið hentar.

Viltu sjá vCore í notkun?

Bókaðu stutta kynningu. Við sýnum þér kerfið á raunverulegum vef og förum yfir hvort það hentar ykkur.

Netfang er nauðsynlegt. Sími er valfrjáls.

Valið: Fyrirtækjavefur

Við notum upplýsingarnar aðeins til að svara þér. Persónuvernd