Umsjón og umbætur
Áttu vef fyrir? Við tökum við keflinu.
Kannastu við þetta?
Þegar enginn hugsar almennilega um vefinn.
Enginn svarar þegar eitthvað bilar
Fyrri aðili er hættur eða hefur ekki tíma
Þú veist ekki hver er með aðgang að vefnum eða léninu
Uppfærslur hafa setið á hakanum
Vefurinn er hægur eða lítur illa út í síma
Vefurinn skilar fáum fyrirspurnum
Svona byrjum við
Frá yfirferð að föstum rekstri.
- 01
Upphaflegt mat
Við ræðum markmiðin, kerfið sem vefurinn keyrir á og það sem helst er að.
- 02
Tæknileg yfirferð
Við förum yfir kóða, uppfærslur, öryggi, hraða og aðganga og staðfestum hvort við getum borið ábyrgð á rekstrinum.
- 03
Samþykkt umfang
Þú færð skýra áætlun: hvað þarf að laga strax, hvað það kostar og hvað felst í áframhaldandi umsjón. Ekkert hefst fyrr en þú hefur samþykkt.
- 04
Rekstur og umbætur
Við tökum við rekstrinum, sinnum beiðnum í þjónustuborðinu og leggjum reglulega til umbætur.
Innifalið í umsjón
Einn aðili sem ber ábyrgð.
Kerfin sem við vinnum með
Við tökum að okkur vefi á helstu kerfunum. Ef vefurinn er sérsmíðaður skoðum við hann sérstaklega. Við flytjum vefinn í hýsingu hjá okkur og hýsingin er innifalin í umsjóninni.
- WordPress
- WooCommerce
- Sanity
- vCore
Fastur tengiliður
Þú veist hver sér um vefinn þinn og hvert þú snýrð þér.
Uppfærslur og öryggi
Við uppfærum kerfi og viðbætur og fylgjumst með öryggisveikleikum.
Afritun og vöktun
Við tryggjum reglulega afritun og vöktum að vefurinn sé uppi.
Beiðnir í þjónustuborði
Breytingar og beiðnir fara í gegnum þjónustuborðið, svo ekkert týnist og þú sérð stöðuna.
Reglulegar umbætur
Við leggjum til umbætur sem skila sér — ekki bara viðhald.
Skýr forgangsröðun
Við forgangsröðum með þér því sem skiptir mestu fyrir reksturinn.
Verð
Verð eftir mati — alltaf fyrir fram.
Verðið fer eftir kerfinu, ástandi vefsins og umfanginu. Eftir yfirferðina færðu fast mánaðarverð fyrir umsjón og hýsingu og sér verð fyrir upphaflegar lagfæringar. Lágmarkstíminn er 12 mánuðir.
Viðbótarverk eru á tímagjaldi, 19.900 kr. á klst. án VSK.
Stundum borgar sig að byrja upp á nýtt
Ef yfirferðin sýnir að vefurinn er kominn á endastöð segjum við þér það hreint út. Þá getur vefur í áskrift verið betri kostur — án stofnkostnaðar. Þú ákveður.
Skoða vefi í áskriftAlgengar spurningar
Finnurðu ekki svarið?
Já, oft. Við byrjum á að fara yfir vefinn, kerfið og aðgangana og segjum þér hreint út hvort við getum borið ábyrgð á rekstrinum eins og hann er. Stundum þarf fyrst að laga nokkur atriði og stundum er skynsamlegra að smíða nýjan vef í áskrift. Þú færð niðurstöðuna og verð áður en nokkuð er ákveðið.
Það fer eftir kerfinu, ástandi vefsins og hversu mikil vinna fylgir honum. Eftir yfirferðina færðu fast mánaðarverð fyrir umsjón og hýsingu og sér verð fyrir upphaflegar lagfæringar, áður en nokkuð hefst.
Nei. 24 mánaða lágmarkstíminn á við vef í áskrift, þar sem við smíðum nýjan vef án stofnkostnaðar (12 mánuðir í Einföldum fyrirtækjavef og Lítilli netverslun). Umsjón með núverandi vef hefur 12 mánaða lágmarkstíma og síðan 3 mánaða uppsagnarfrest.
Þú. Lénið er skráð á þitt fyrirtæki og er þín eign. Sama gildir um texta, myndir og gögn sem þú leggur til eða verða til í rekstri vefsins, til dæmis pantanir og viðskiptavinaskrár. Ef samstarfi lýkur afhendum við allt efni og öll gögn án endurgjalds og aðstoðum við flutning lénsins.
Segðu okkur frá vefnum þínum
Sendu okkur vefslóðina og hvað þú vilt að breytist. Við förum yfir vefinn og höfum samband með næstu skref.