Ókeypis vefgreining
Hvernig stendur vefurinn þinn?
Hvað er mælt
Fjögur svið sem ráða því hvort vefurinn skilar sínu
Hraði
Hve lengi gestir bíða eftir efninu á síma og tölvu, mælt með Core Web Vitals.
Leitarvélar
Titlar, lýsingar, fyrirsagnir, veftré og annað sem Google þarf til að skilja og skrá síðuna.
Öryggi
Dulkóðun og öryggisstillingar á netþjóni sem verja gesti og vefinn sjálfan.
Aðgengi
Hvort litir, textar og hnappar virki fyrir alla, líka þá sem nota skjálesara eða lyklaborð.
Spurt og svarað
Um vefgreininguna
Hraði, aðgengi og gæði eru mæld með Google Lighthouse, sama tóli og er á bak við PageSpeed Insights. Vefurinn er opnaður í raunverulegum vafra á hermdum síma og tölvu. Grunnatriðin um leitarvélar og öryggi lesum við sjálf beint af síðunni og svari netþjónsins.
Hraðamæling fer eftir álagi á netþjóninum og nettengingu á því augnabliki. Nokkurra stiga sveifla er eðlileg. Ef munurinn er mikill er oft eitthvað óstöðugt á vefnum sjálfum, til dæmis hæg hýsing eða utanaðkomandi skriftur.
90 eða hærra er gott, 50 til 89 má bæta og undir 50 er slakt. Mestu skiptir hraðinn á síma, því þar eru flestir gestir og Google metur vefi út frá símaútgáfunni.
Nei, aðeins á þeirri síðu sem þú slærð inn, yfirleitt forsíðunni. Hún gefur góða mynd af tæknilegu ástandi vefsins. Ef þú vilt úttekt á öllum vefnum, með efni og leitarorðum, gerum við hana fyrir þig.
Nei. Mælingin er gerð um leið og þú biður um hana og niðurstöðurnar eru aðeins sýndar þér. Við fáum þær eingöngu ef þú sendir okkur fyrirspurn í forminu neðst.
Viltu að við förum yfir þetta með þér?
Við lesum úr niðurstöðunum, segjum þér hvað skiptir máli og hvað má bíða, og hvað það kostar að laga. Engin skuldbinding.