Netverslunarkerfi

Rétta kerfið fyrir ykkar netverslun.

Við vinnum með öll helstu netverslunarkerfin, allt frá íslenska Cartico til Shopify, WooCommerce og kerfa fyrir stærri og sérsmíðaðar verslanir. Við hjálpum ykkur að velja, hönnum verslunina, tengjum greiðslur og bókhald og sjáum um reksturinn.
Bera saman kerfin
  • Íslenskar greiðsluleiðir
  • Flutningur án þess að tapa gögnum
  • Rekstur og viðhald

Kerfin

Sjö kerfi. Ein verslun sem selur.

Hvert kerfi hefur sína styrkleika. Hér er stutt yfirlit yfir hvað hvert þeirra gerir best og hvenær við mælum með því.

Cartico

Okkar kerfiÍslenskt · hýst

Netverslun í loftið samdægurs, án færslugjalda.

Cartico er netverslunarkerfi frá Novamedia, sama fyrirtæki og rekur Vefsíðu. Þú velur útlit, setur inn vörur og tengir lénið, og verslunin er komin í loftið. Engin færslugjöld, tengingar við íslenskar greiðsluleiðir og þjónusta á íslensku.

Hentar vel fyrir

  • Íslenskar verslanir sem vilja byrja hratt
  • Þá sem vilja sleppa færslugjöldum
  • Verslanir sem eru að flytja úr Shopify eða WooCommerce
  • Shopify

    Hýst

    Stærsta hýsta netverslunarkerfi heims.

    Shopify er hýst lausn sem milljónir verslana nota. Kerfið er stöðugt, með stórt app-safn og öflug sölutæki. Á Íslandi þarf að hafa í huga að Shopify Payments er ekki í boði, svo Shopify leggur eigið færslugjald ofan á gjald greiðsluþjónustunnar.

    Hentar vel fyrir

    • Verslanir sem selja til margra landa
    • Þá sem vilja stórt app-safn
    • Hraða uppsetningu án hýsingar
  • WooCommerce

    Opinn hugbúnaður · WordPress

    Netverslun ofan á WordPress.

    WooCommerce breytir WordPress-vef í netverslun. Þið eigið kóðann og gögnin, ráðið hýsingunni og getið bætt við nánast hverju sem er með viðbótum. Hentar vel þegar efni og sala þurfa að vinna saman á einum vef.

    Hentar vel fyrir

    • Fyrirtæki sem eru nú þegar á WordPress
    • Verslanir með mikið efni og blogg
    • Þá sem vilja fullt vald yfir kóða og gögnum
  • Shopware

    Opinn kjarni · evrópskt

    Evrópskt kerfi fyrir vaxandi verslanir.

    Shopware er þýskt netverslunarkerfi, mikið notað í Evrópu. Það hentar stærri verslunum með flókið vöruúrval, sölu til fyrirtækja og mörg tungumál og gjaldmiðla. Það fæst bæði til að hýsa sjálf og sem skýjaþjónusta.

    Hentar vel fyrir

    • Stærri verslanir með flókið vöruúrval
    • Sölu til fyrirtækja (B2B)
    • Evrópska markaði með mörg tungumál
  • BigCommerce

    Hýst

    Hýst kerfi með sterkan B2B-grunn.

    BigCommerce er hýst lausn eins og Shopify, en leggur ekki eigið færslugjald á sölu, sama hvaða greiðsluþjónusta er notuð. Kerfið er sterkt í sölu til fyrirtækja og hentar vel sem bakendi undir sérsmíðaðan framenda.

    Hentar vel fyrir

    • Stærri verslanir sem vilja hýsta lausn
    • B2B og heildsölu
    • Headless verslanir með sérsmíðuðum framenda
  • PrestaShop

    Opinn hugbúnaður

    Vinsælt opið kerfi í Evrópu.

    PrestaShop er franskt netverslunarkerfi í opnum hugbúnaði, sérstaklega útbreitt í Frakklandi og á Spáni. Það er ókeypis í grunninn, hýst þar sem þið viljið og með stórt safn eininga fyrir greiðslur, sendingar og markaðssetningu.

    Hentar vel fyrir

    • Verslanir sem selja til Frakklands og Spánar
    • Þá sem vilja opið kerfi án áskriftar
    • Meðalstórar verslanir með hefðbundnar þarfir
  • Medusa

    Headless · opinn hugbúnaður

    Sveigjanlegur grunnur fyrir sérsmíðaða verslun.

    Medusa er opinn hugbúnaður byggður á Node.js. Kerfið sér um körfu, pantanir, birgðir og greiðslur, en framendinn er smíðaður frá grunni. Hentar þegar verslunin þarf ferla sem tilbúin kerfi ráða ekki við.

    Hentar vel fyrir

    • Sérsniðin kaupferli og verðlagningu
    • Verslanir sem tengjast mörgum kerfum
    • Teymi sem vilja eiga allan kóðann

Hvað hentar ykkur?

Byrjaðu á þörfinni, ekki kerfinu.

Nokkrar algengar aðstæður og kerfin sem við myndum skoða fyrst. Þetta er upphafspunktur, ekki niðurstaða.
  • Við viljum opna netverslun fljótt og með litlum kostnaði.

    Tilbúin útlit, íslenskar greiðsluleiðir og engin færslugjöld.

  • Við seljum til margra landa og viljum hýsta lausn.

    Öflug hýst kerfi með gjaldmiðlum, sköttum og stóru app-safni.

  • Vefurinn okkar er á WordPress og efnið skiptir miklu.

    Verslun og efni á sama stað, á kerfi sem þið þekkið.

  • Við seljum mikið til annarra fyrirtækja.

    Verðlistar eftir viðskiptavinum, magnafsláttur og pantanir á reikning.

  • Kaupferlið okkar passar ekki í neitt staðlað kerfi.

    Headless grunnur þar sem hvert skref er smíðað eftir ykkar þörfum.

  • Við vitum ekki enn hvað hentar.

    Við förum yfir þarfirnar með ykkur og mælum með kerfi, án skuldbindingar.

Samanburður

Kerfin hlið við hlið

Stutt yfirlit yfir helstu muninn. Smáatriðin skipta máli, og við förum yfir þau með ykkur.
Kerfin hlið við hliðCarticoShopifyWooCommerceShopwareBigCommercePrestaShopMedusa
TegundHýstHýstViðbót við WordPressOpinn kjarni eða hýstHýstOpinn hugbúnaðurHeadless, opinn hugbúnaður
HýsingInnifalinInnifalinHvar sem erHvar sem er eða hjá ShopwareInnifalinHvar sem erHvar sem er eða Medusa Cloud
Kostnaður við kerfiðÓkeypis að byrja, svo áskriftMánaðarleg áskriftÓkeypis, greitt fyrir hýsingu og sumar viðbæturÓkeypis grunnútgáfa, greiddar leiðir fyrir stærriMánaðarleg áskriftÓkeypis, greitt fyrir sumar einingarÓkeypis, greitt fyrir hýsingu
Færslugjöld kerfisinsEnginAukagjald án Shopify Payments, sem er ekki í boði á ÍslandiEnginEngin ef þið hýsið sjálfEnginEnginEngin
Hentar bestÍslenskar verslanir sem vilja byrja hrattAlþjóðlega sölu og hraða uppsetninguWordPress-vefi með mikið efniStærri verslanir og B2B í EvrópuStærri hýstar verslanir og B2BOpið kerfi án áskriftarSérsmíðuð kaupferli

Greiðsluþjónustur, eins og Teya, Rapyd eða Stripe, taka sín eigin gjöld óháð kerfi. Verð og skilmálar framleiðenda geta breyst, og við förum yfir heildarkostnaðinn áður en kerfi er valið.

Greiðslur, sendingar og bókhald

Tengt við það sem þið notið nú þegar.

Netverslun er meira en vefur. Við tengjum hana við greiðsluleiðir, sendingarþjónustur og bókhald svo pantanir renni sjálfkrafa í gegn og enginn þurfi að slá sömu upplýsingar inn tvisvar.

Greiðslur

  • Teya
  • Rapyd
  • Straumur
  • Netgíró
  • Pei
  • Stripe
  • PayPal
  • Klarna
  • Adyen

Sendingar

  • Dropp
  • Pósturinn
  • Flytjandi
  • DHL

Bókhald og birgðir

  • DK
  • Payday
  • Regla
  • Navision / Business Central

Dæmi um þjónustur sem við tengjum við. Hvaða tengingar eru tilbúnar fer eftir kerfinu, og annað smíðum við.

Ertu nú þegar með netverslun?

Þú þarft ekki að byrja upp á nýtt.

Ef verslunin er á einhverju þessara kerfa getum við bætt hana, tekið við rekstrinum eða flutt hana í kerfi sem hentar betur. Við byrjum á heiðarlegri úttekt á stöðunni.

  • Bæta og breyta

    Hraðari vörusíður, einfaldara greiðsluferli, nýjar greiðsluleiðir eða endurhönnun hluta verslunarinnar.

  • Taka við rekstri

    Við tökum við hýsingu, uppfærslum, afritun og öryggi og erum til staðar þegar eitthvað kemur upp.

  • Flytja í annað kerfi

    Við flytjum vörur, viðskiptavini og pantanasögu á milli kerfa og setjum upp tilvísanir svo leitarstaðan haldist.

Eða prófaðu ókeypis vefgreiningu

Hvað við gerum

Frá fyrstu vöru til þúsundustu pöntunar.

  • Ráðgjöf og val á kerfi

    Við berum kostina saman út frá vöruúrvali, markaði, fjárhag og teymi, og segjum hreint út hvað við myndum velja.

  • Hönnun og kaupupplifun

    Vörusíður, leit, karfa og greiðsluferli sem eru hönnuð til að selja, í síma jafnt sem tölvu.

  • Greiðslur og sendingar

    Kortagreiðslur, greiðsludreifing, afhendingarstaðir og sendingarkostnaður sem reiknast rétt.

  • Bókhald og birgðir

    Pantanir, vörur og birgðastaða í takt við bókhalds- og birgðakerfin ykkar.

  • Tungumál og gjaldmiðlar

    Sala á fleiri mörkuðum, með réttum verðum, sköttum og slóðum fyrir leitarvélar.

  • Rekstur og vöxtur

    Hraði, öryggi og uppfærslur, ásamt leitarvélabestun og greiningu á því hvað selst.

Flutningur á milli kerfa

Nýtt kerfi, sömu viðskiptavinir.

Í netverslun þarf meira en efnið að fylgja með. Vörur, afbrigði, viðskiptavinir og pantanasaga þurfa að skila sér, og verslunin má ekki loka á meðan.
  1. 1

    Úttekt

    Við förum yfir vörur, afbrigði, viðskiptavini, pantanasögu, slóðir og tengingar sem þarf að halda.

  2. 2

    Gagnaflutningur

    Vörur, myndir, birgðir og viðskiptavinir eru fluttir, sjálfvirkt þar sem hægt er, og yfirfarnir.

  3. 3

    Prófanir

    Prufupantanir fara í gegnum allar greiðslu- og sendingarleiðir og hver gömul slóð fær 301-tilvísun.

  4. 4

    Opnun

    Við skiptum yfir þegar umferð er lítil og fylgjumst með sölu, villum og leitarvélum eftir opnun.

Algengar spurningar um netverslunarkerfi

  • Það fer eftir versluninni. Fyrir flestar íslenskar verslanir sem vilja byrja hratt og sleppa færslugjöldum mælum við með Cartico. Ef selt er til margra landa er Shopify oft góður kostur, WooCommerce ef vefurinn er á WordPress, og Shopware eða BigCommerce fyrir stærri verslanir og sölu til fyrirtækja.

  • Cartico er netverslunarkerfi frá Novamedia, sama fyrirtæki og rekur Vefsíðu. Það hentar þeim sem vilja stofna og reka verslun sjálfir. Ef þið viljið sérhannaða netverslun sem við hönnum og rekum, smíðum við hana á því kerfi sem hentar best.

  • Fyrir kortagreiðslur eru Teya, Rapyd og Straumur algengastar, og Netgíró og Pei bjóða greiðsludreifingu og greiðslu síðar. Stripe, PayPal og Klarna henta vel þegar selt er til útlanda. Hvaða leiðir eru tilbúnar fer eftir kerfinu.

  • Já. Við flytjum vörur, afbrigði, myndir, viðskiptavini og pantanasögu, prófum allar greiðslu- og sendingarleiðir og setjum upp 301-tilvísanir svo leitarstaðan haldist. Verslunin er opin allan tímann.

  • Já. Við tengjum pantanir, vörur og birgðir við bókhalds- og birgðakerfi eins og DK, Payday og Reglu. Eftir kerfum notum við tilbúna tengingu eða smíðum hana.

  • Kostnaðurinn skiptist í kerfið sjálft, hýsingu, greiðslugjöld og rekstur. Hýst kerfi eins og Shopify og BigCommerce eru í áskrift, en WooCommerce, PrestaShop og Medusa eru ókeypis og greitt fyrir hýsingu. Cartico er ókeypis að byrja og tekur engin færslugjöld. Við förum yfir heildarmyndina áður en kerfi er valið.

Ekki viss hvaða kerfi hentar?

Segðu okkur aðeins frá versluninni, vörunum og mörkuðunum. Við svörum með tillögu að kerfi og næstu skrefum.

Netfang er nauðsynlegt. Sími er valfrjáls.

Valið: Netverslun – B2C

Við notum upplýsingarnar aðeins til að svara þér. Persónuvernd