Netverslanir

Netverslun sem selur. Og einhver sem sér um hana.

Við hönnum netverslunina út frá vörunum þínum og viðskiptavinum, setjum hana upp og rekum hana áfram — svo þú getir einbeitt þér að sölunni.
Sjá verð

Innifalið

Allt sem netverslun þarf. Á einum stað.

01

Hönnuð fyrir þínar vörur

Vöruflokkar, vörusíður og framsetning eru hönnuð út frá vöruúrvalinu og því hvernig viðskiptavinir þínir leita og kaupa.

02

Einfalt kaupferli

Karfa og greiðsluferli sem virkar vel í síma, með eins fáum skrefum og hægt er.

03

Greiðslur og tengingar

Við tengjum greiðslulausnir og setjum upp það sem þarf til að taka við pöntunum frá fyrsta degi.

04

Rekstur sem þú þarft ekki að hugsa um

Hýsing, öryggi, uppfærslur og vöktun. Þú einbeitir þér að vörunum og viðskiptavinunum.

Verð

Netverslun í þremur stærðum. 0 kr. í upphafi.

Frá lítilli verslun upp í B2B-verslun fyrir heildsölu. Hönnun, uppsetning, rekstur og eðlilegar breytingar eru í einu mánaðargjaldi. Stærri sérsmíði, til dæmis sérstakar tengingar við birgða- eða bókhaldskerfi, er verðlögð sérstaklega.

Lítil netverslun

Fyrir smærri aðila sem vilja byrja að selja á netinu, í verslun sem við setjum upp og rekum.

29.900kr./mán.

0 kr. stofnkostnaður

12 mánaða lágmarkstími · án VSK

Upphafsvinna innifalin

Uppsetning · hönnun aðlöguð vörumerkinu · innsetning vara · tvær yfirferðir

Við byrjum á

  • Allt að 100 vörur á einu tungumáli
  • Hönnun aðlagaða vörumerkinu
  • Greiðslugátt og staðlað kaupferli
  • Innsetningu vara og tvær yfirferðir

Síðan sjáum við um

  • Hýsingu og villuvöktun allan sólarhringinn
  • Öryggi, afritun og uppfærslur
  • Allt að 30 mín. á mánuði í minni breytingar
  • Aðgang að teyminu í þjónustuborði

Netverslun – B2C

Fyrir fyrirtæki sem selja vörur á netinu og vilja að Vefsíða sjái um uppsetningu, hönnun og tæknilegan rekstur.

59.900kr./mán.

0 kr. stofnkostnaður

24 mánaða lágmarkstími · án VSK

Upphafsvinna innifalin

Að verðmæti allt að 1.200.000 kr.

Greining · UX · UI · hönnun · þróun · uppsetning

Við byrjum á

  • Greiningu á vöruúrvali og kaupferli
  • UX/UI hönnun verslunar
  • Uppsetningu greiðslna og vöruflokka
  • Kaupferli sem virkar vel í síma

Síðan sjáum við um

  • Hýsingu og villuvöktun allan sólarhringinn
  • Öryggi, afritun og uppfærslur
  • 40 klst. af þróun á ári
  • Eðlilegar breytingar og aðstoð

Netverslun – B2B

Fyrir heildsölur og fyrirtæki sem selja öðrum fyrirtækjum og vilja að viðskiptavinir panti sjálfir á netinu, á sínum kjörum.

89.900kr./mán.

0 kr. stofnkostnaður

24 mánaða lágmarkstími · án VSK

Upphafsvinna innifalin

Að verðmæti allt að 1.600.000 kr.

Greining · UX · UI · hönnun · þróun · uppsetning

Við byrjum á

  • Greiningu á viðskiptavinum, kjörum og pöntunarferli
  • UX/UI hönnun pöntunarvefs
  • Innskráningu fyrirtækja og aðgangsstýringu
  • Verð og afslætti eftir viðskiptavinum

Síðan sjáum við um

  • Hýsingu og villuvöktun allan sólarhringinn
  • Öryggi, afritun og uppfærslur
  • 50 klst. af þróun á ári
  • Eðlilegar breytingar og aðstoð

Viltu frekar stofna og reka netverslun sjálfur?

Skoða Cartico

Viðbót

Eigið app fyrir verslunina

Með Vefsida.app geturðu bætt við appi fyrir iPhone og Android, tengdu versluninni og undir þínu vörumerki. Appið er sér viðbót með eigin verði og skilmálum.

Kynntu þér app fyrir netverslanir

Hvað er innifalið?

Áframhaldandi þróun innifalin.

Frá Fyrirtækjavef inniheldur áskriftin þróunarpott á hverjum ársfjórðungi, svo vefurinn heldur áfram að batna eftir að hann fer í loftið.
  • 01

    Daglegar breytingar

    Textar, myndir, nýjar fréttir, uppfærðar upplýsingar, nýjar síður byggðar á núverandi síðutegundum og minni útlitsbreytingar eru innifaldar.

  • 02

    Áframhaldandi þróun

    Frá 30 klst.af þróun á ári

    Að verðmæti 597.000 kr. á ári

    Frá 7,5 klst. á hverjum ársfjórðungi (30 klst. á ári í Fyrirtækjavef, allt að 50 í stærri pökkum) sem þú getur nýtt í nýja virkni, betri notendaupplifun, tengingar við önnur kerfi og aðrar umbætur. Vefurinn heldur áfram að batna eftir opnun, án aukakostnaðar.

    Fjöldinn fer eftir pakka. Tímarnir gilda innan hvers ársfjórðungs og ná yfir þróunarvinnu. Við áætlum verkið með þér áður en vinna hefst.

  • 03

    Stærri verkefni

    Stærri viðbætur, sérsmíði eða verkefni sem fara umfram innifalinn þróunarpott eru verðlögð sérstaklega. Þú færð alltaf verð eða tímaáætlun áður en vinna hefst.

Einfaldur fyrirtækjavefur og Lítil netverslun

Allt að 30 mínútur á mánuði í minni breytingar á texta, myndum og upplýsingum. Ónotaður tími færist ekki á milli mánaða og þróunartímar fylgja ekki. Ef beiðni fer umfram það látum við vita og þú færð verð áður en vinna hefst.

Viðbótarvinna: 19.900 kr./klst. án VSK

Samningstími

Af hverju 24 mánuðir?

Við leggjum töluverða vinnu í greiningu, hönnun og þróun áður en vefurinn fer í loftið. Í stað þess að rukka háan stofnkostnað dreifum við þeirri fjárfestingu yfir samningstímann. Þess vegna fylgir þjónustunni 24 mánaða lágmarkstími. Einfaldur fyrirtækjavefur og Lítil netverslun eru afmarkaðri og hafa 12 mánaða lágmarkstíma. Þeir sem greiða stofngjald í upphafi fá lægra mánaðargjald og 12 mánaða lágmarkstíma.

Lénið er þitt

Lénið er skráð á þitt fyrirtæki og er alltaf þín eign.

Efnið og gögnin eru þín

Textar, myndir og gögn sem þú leggur til eða verða til í rekstri vefsins eru eign fyrirtækisins þíns.

Engin óeðlileg binding

Skilmálarnir eru skýrir frá byrjun. Þú veist nákvæmlega hvað þú greiðir, hversu lengi og hvað gerist ef þú vilt hætta.

Eftir lágmarkstímann

Þjónustan heldur áfram samkvæmt skilmálum. Þú þarft ekki að kaupa nýjan vef — hann hefur verið rekinn og bættur allan tímann.

Þú samþykkir hönnunina

Við förum yfir hönnunina með þér og vefurinn fer ekki í loftið fyrr en þú hefur samþykkt hana.

Við sjáum um flutninginn

Ertu með vef fyrir? Við flytjum efnið, lénið og tengingarnar yfir og sjáum til þess að ekkert tapist á leiðinni.

Ferlið

Einfalt ferli frá fyrsta fundi.

Flestir vefir fara í loftið á 2–6 vikum frá því að hönnunarvinna hefst, eftir umfangi og því hversu fljótt efni liggur fyrir.
  1. 01

    Greining

    Við kynnumst fyrirtækinu, markmiðum þess og notendum og skipuleggjum efnið.

  2. 02

    Hönnun

    Við hönnum notendaferð og viðmót og förum yfir hönnunina með þér.

  3. 03

    Smíði

    Við forritum vefinn, setjum inn efni og prófum á öllum skjástærðum.

  4. 04

    Í loftið

    Vefurinn fer í loftið með mælingum, tæknilegu SEO og vöktun uppsettu.

  5. 05

    Rekstur og þróun

    Við rekum vefinn, framkvæmum breytingar og bætum hann jafnt og þétt.

Nýtt · MCP-tenging

Talaðu við verslunina þína. Hann svarar og framkvæmir.

Kerfin okkar tengjast Claude og ChatGPT. Þú segir á mannamáli hvað á að gera, gervigreindin sýnir þér breytinguna og þú samþykkir. vCore sér um vefinn sjálfan, vConnector um verslunina og bókhaldið og vMarketing um auglýsingarnar.

MCP er opinn staðall sem tengir gervigreind við kerfin þín. Hún fær aðeins þær heimildir sem þú velur.

vConnector. Situr á milli vefverslunar og bókhalds: WooCommerce, Shopify eða Magento öðrum megin, dk, Payday eða Business Central hinum megin.

Fylgir Netverslun B2C og B2B

Þú

Hvaða pantanir skiluðu sér ekki í bókhaldið í nótt?

Claude · vConnector

Tvær pantanir þarfnast athugunar. Í annarri vantar kennitölu viðskiptamanns og í hinni finnst vörunúmerið ekki í dk. Á ég að senda þær aftur þegar það er lagað?Skoða pantanirnar
  • Ekkert birt án samþykkis

    Gervigreindin sýnir breytinguna og bíður eftir þér áður en nokkuð fer á vefinn.

  • Saga og afturköllun

    Hver breyting er skráð og fyrri útgáfu má endurheimta.

  • Þínar heimildir

    Gervigreindin sér aðeins það sem notandinn sjálfur hefur aðgang að.

Algengar spurningar

Finnurðu ekki svarið?

  • Já. Þú greiðir ekkert sérstaklega fyrir greiningu, hönnun, smíði eða uppsetningu. Þess í stað greiðir þú fast mánaðargjald með lágmarkstíma: 12 mánuðum í Einföldum fyrirtækjavef og Lítilli netverslun og 24 mánuðum í öðrum vefpökkum. Ef þú þarft sérsmíði umfram pakkann færðu verð í hana áður en vinna hefst. Fyrsti mánuðurinn greiðist við staðfestingu pöntunar og telst fyrsti mánuður samningstímans. Næsta greiðsla kemur þegar vefurinn fer í loftið, en þó í síðasta lagi 30 dögum eftir að vefurinn er tilbúinn til efnisinnsetningar ef efni eða samþykki frá þér tefst. Viljir þú frekar greiða upphafsvinnuna strax er líka í boði leið með stofngjaldi: þá lækkar mánaðargjaldið um þriðjung og lágmarkstíminn styttist úr 24 mánuðum í 12. Þróunartímar fylgja þá ekki; öll þróun er á tímagjaldi og samþykkt fyrir fram.

  • Við leggjum töluverða vinnu í greiningu, hönnun og þróun áður en vefurinn fer í loftið. Í stað þess að rukka háan stofnkostnað dreifum við þeirri fjárfestingu yfir samningstímann. Þannig getum við boðið vandaðan vef án stórrar greiðslu í upphafi. Lágmarkstíminn er 24 mánuðir í Fyrirtækjavef og stærri pökkum en 12 mánuðir í Einföldum fyrirtækjavef og Lítilli netverslun, þar sem upphafsvinnan er afmarkaðri. Ef þú greiðir stofngjald í upphafi er lágmarkstíminn 12 mánuðir í öllum vefpökkum.

  • Þú. Lénið er skráð á þitt fyrirtæki og er þín eign. Sama gildir um texta, myndir og gögn sem þú leggur til eða verða til í rekstri vefsins, til dæmis pantanir og viðskiptavinaskrár. Ef samstarfi lýkur afhendum við allt efni og öll gögn án endurgjalds og aðstoðum við flutning lénsins.

  • Já. Í Fyrirtækjavef og stærri pökkum eru daglegar breytingar innifaldar — textar, myndir, nýjar fréttir, uppfærðar upplýsingar, nýjar síður byggðar á núverandi síðutegundum og minni útlitsbreytingar. Að auki eru 30 til 50 klst. af þróun á ári innifaldar eftir pakka, skipt jafnt á ársfjórðunga, sem má nýta í nýja virkni, umbætur á notendaupplifun eða minni tengingar. Þú sendir okkur beiðni og við sjáum um framkvæmdina. Í Einföldum fyrirtækjavef og Lítilli netverslun eru innifaldar allt að 30 mínútur á mánuði í minni breytingar á texta, myndum og upplýsingum.

  • Stærri viðbætur, ný virkni sem rúmast ekki í þróunarpottinum, nýjar tengingar við önnur kerfi, endurhönnun á stórum hluta vefsins eða önnur sérsmíði. Slíkt verðleggjum við sérstaklega, sem fast verð eða á tímagjaldi, og þú færð alltaf verð eða tímaáætlun áður en vinna hefst.

  • Minni tengingar, til dæmis við bókunar-, greiðslu- eða póstlistakerfi, rúmast oft innan Stærri fyrirtækjavefs, Netverslunar eða Ferðavefs. Stærri sérsmíði — sérhönnuð kerfi, flóknar samþættingar eða hugbúnaðarlausnir — vinnur Novamedia, sem Vefsíða er hluti af og sérhæfir sig í slíkum verkefnum.

    Skoða Novamedia
  • Já, oft. Við byrjum á að fara yfir vefinn, kerfið og aðgangana og segjum þér hreint út hvort við getum borið ábyrgð á rekstrinum eins og hann er. Stundum þarf fyrst að laga nokkur atriði og stundum er skynsamlegra að smíða nýjan vef í áskrift. Þú færð niðurstöðuna og verð áður en nokkuð er ákveðið.

  • Já. Cartico er fyrir þá sem vilja stofna og reka netverslun sjálfir. Ef þú vilt sérhannaða netverslun sem við hönnum og rekum er Netverslun hjá Vefsíðu rétta leiðin.

    Skoða Cartico