Fyrirtækjavefir
Fyrirtækjavefur sem við sjáum um.
- Síðan 2006
- Engin keypt sniðmát
- Villuvöktun allan sólarhringinn
- 0 kr. stofnkostnaður
Innifalið
Eitt mánaðargjald. Allur vefurinn.
- 01
Hönnun
Hönnun byggð á þínu vörumerki, efni og markmiðum.
- 02
Þróun
Hraður, aðgengilegur og vel smíðaður vefur á traustum tæknigrunni.
- 03
Hýsing
Við hýsum vefinn og sjáum um SSL skilríki og netþjóna.
- 04
Öryggi
Öryggisuppfærslur og afritun, svo gögnin séu örugg.
- 05
Vöktun
Við fylgjumst með að vefurinn sé uppi og bregðumst við ef eitthvað kemur upp.
- 06
Breytingar og þróun
Minni breytingar eru innifaldar í öllum pökkum. Frá Fyrirtækjavef fylgja líka 20 klst. af þróun á ári.
- 07
Áframhaldandi umbætur
Í pökkum með þróunartímum bætum við vefinn jafnt og þétt eftir því sem þarfir, tækni og notendur breytast.
Frá 19.900 kr. á mánuði
Sjá pakka og verð
Hönnun og notendaupplifun
Við byrjum ekki á sniðmáti. Við byrjum á fyrirtækinu.
Hver vefur byrjar á markmiðum, vörumerki, efnisuppbyggingu og notendaferð. Við hugsum fyrst um hvað notandinn á að sjá, skilja og gera — áður en við hönnum viðmótið.


Í símanum fylgir bókunarhnappurinn notandanum.

Lausir og bókaðir dagar sjást strax.

Verðið reiknast um leið og dagsetningar eru valdar.
- 01
UI hönnun
Sjónræn framsetning sem byggir á þínu vörumerki — ekki tilbúnu sniðmáti.
- 02
UX og notendaferð
Við skipuleggjum efni, valmyndir og aðgerðir þannig að vefurinn sé einfaldur í notkun og styðji markmið fyrirtækisins.
- 03
Hannaður fyrir síma
Vefurinn þarf að virka jafn vel á síma og stórum skjá. Við hönnum fyrir minnsta skjáinn fyrst.
- 04
Mannleg yfirferð
Við nýtum nýjustu tækni til að vinna hraðar, en hönnunarákvarðanir, gæðamat og lokaútfærsla eru alltaf í höndum okkar.
Pakkar
Vefur í hæsta gæðaflokki. Án stóra reikningsins.
Einfaldur fyrirtækjavefur
Fyrir lítil fyrirtæki og sjálfstætt starfandi sem þurfa faglegan kynningarvef og vilja ekki hugsa um rekstur hans.
19.900kr./mán.
0 kr. stofnkostnaður
12 mánaða lágmarkstími · án VSK
Upphafsvinna innifalin
Uppsetning · hönnun aðlöguð vörumerkinu · innsetning efnis · tvær yfirferðir
Við byrjum á
- Allt að fimm síður á einu tungumáli
- Hönnun aðlagaða vörumerkinu
- Innsetningu efnis og tvær yfirferðir
- Fyrirspurnarform
Síðan sjáum við um
- Hýsingu og villuvöktun allan sólarhringinn
- Öryggi, afritun og uppfærslur
- Allt að 30 mín. á mánuði í minni breytingar
- Aðgang að teyminu í þjónustuborði
Kerfin
Upphafsvinna
- Allt að fimm efnissíður á einu tungumáli, t.d. forsíða, þjónusta, um okkur, verkefni og hafa samband
- Ein hönnunarstefna, aðlöguð vörumerkinu
- Tvær yfirferðir á hönnun og efni
- Innsetning texta, merkis og mynda sem þú leggur til, létt textayfirferð og myndabestun
- Fyrirspurnarform
- Aðgangur að vCore og stutt kynning við afhendingu
Rekstur og öryggi
- Hýsing
- SSL skilríki
- Afritun
- Öryggisuppfærslur
- Villuvöktun (Sentry)
- Vöktun á uppitíma
- Lagfæringar á göllum í afhentri útfærslu
Mælingar og sýnileiki
- Aðlagaður að síma
- Aðgengi í hefðbundnum viðmótum
- Grunn-SEO og vefkort
- Google Search Console
- Grunnmælingar
Breytingar
- Allt að 30 mín. á mánuði í minni efnisbreytingar
- Ónotaður tími færist ekki á milli mánaða
- Engir þróunartímar — stærri verk fá verð fyrir fram
Fyrirtækjavefur
Fyrir fyrirtæki sem vilja sérhannaðan vef sem heldur áfram að þróast — og vilja ekki þurfa að hugsa um rekstur hans.
34.900kr./mán.
0 kr. stofnkostnaður
24 mánaða lágmarkstími · án VSK
Upphafsvinna innifalin
Að verðmæti allt að 700.000 kr.
Greining · UX · UI · hönnun · þróun · uppsetning
Við byrjum á
- Greiningu og uppbyggingu
- UX/UI hönnun
- Sérhönnun
- Þróun og uppsetningu
Síðan sjáum við um
- Hýsingu og villuvöktun allan sólarhringinn
- Öryggi, afritun og uppfærslur
- 20 klst. af þróun á ári
- Breytingar og beinan aðgang að teyminu
Hönnun og smíði
- Greining á þörfum og uppsetning
- UI/UX hönnun
- Þróun
- Aðlagaður að síma og spjaldtölvu
Rekstur og öryggi
- Hýsing
- SSL skilríki
- Afritun
- Öryggisuppfærslur
- Villuvöktun (Sentry)
- Vöktun á uppitíma
- Tæknilegar uppfærslur
Mælingar og sýnileiki
- Analytics
- Google Search Console
- Tæknilegt SEO
Þjónusta
- Aðgangur að teyminu
- Eðlilegar minni efnisbreytingar
Stærri fyrirtækjavefur
Fyrir fyrirtæki með meira efni, fleiri síðutegundir, fleiri tungumál eða flóknari uppbyggingu.
49.900kr./mán.
0 kr. stofnkostnaður
24 mánaða lágmarkstími · án VSK
Upphafsvinna innifalin
Að verðmæti allt að 1.000.000 kr.
Greining · UX · UI · hönnun · þróun · uppsetning
Við byrjum á
- Greiningu og upplýsingauppbyggingu
- Meiri UX/UI vinnu og fleiri síðutegundum
- Fleiri tungumálum þar sem við á
- Tengingum við önnur kerfi, innan eðlilegra marka
Síðan sjáum við um
- Hýsingu og villuvöktun allan sólarhringinn
- Öryggi, afritun og uppfærslur
- 20 klst. af þróun á ári
- Meira svigrúm fyrir breytingar
Allt í Fyrirtækjavef, auk:
Meira umfang
- Meira efni
- Fleiri síður og síðutegundir
- Flóknari upplýsingauppbygging
- Fleiri tungumál þar sem við á
Hönnun og tengingar
- Meiri UI/UX vinna
- Tengingar við önnur kerfi, innan eðlilegra marka
- Svigrúm fyrir sérþarfir
Þjónusta
- Meira svigrúm fyrir áframhaldandi breytingar
Öll verð eru án VSK. Enginn pakki inniheldur ótakmarkaða vinnu. Þannig getum við haldið verðinu sanngjörnu og gæðunum háum.
Reiknaðu dæmið
Hvað kostar sambærilegur vefur á 24 mánuðum?
Hefðbundin leið
Hjá Vefsíðu
24 mánuðir × 34.900 kr./mán.
- Greining, UX/UI hönnun og smíði
- 40 klst. af þróun
- Hýsing, villuvöktun og öryggi
- Breytingar og beinn aðgangur að teyminu
Allt innifalið. Enginn stofnkostnaður.
Upphafsvinnan er metin út frá sambærilegum verkefnum og tímagjaldið er okkar eigið. Öll verð eru án VSK.
Hvað er innifalið?
Áframhaldandi þróun innifalin.
- 01
Daglegar breytingar
Textar, myndir, nýjar fréttir, uppfærðar upplýsingar, nýjar síður byggðar á núverandi síðutegundum og minni útlitsbreytingar eru innifaldar.
- 02
Áframhaldandi þróun
20 klst.af þróun á ári
Að verðmæti 357.600 kr. á ári
5 klst. á hverjum ársfjórðungi sem þú getur nýtt í nýja virkni, betri notendaupplifun, tengingar við önnur kerfi og aðrar umbætur. Vefurinn heldur áfram að batna eftir opnun, án aukakostnaðar.
Tímarnir gilda innan hvers ársfjórðungs og ná yfir þróunarvinnu. Við áætlum verkið með þér áður en vinna hefst.
- 03
Stærri verkefni
Stærri viðbætur, sérsmíði eða verkefni sem fara umfram innifalinn þróunarpott eru verðlögð sérstaklega. Þú færð alltaf verð eða tímaáætlun áður en vinna hefst.
Einfaldur fyrirtækjavefur og Lítil netverslun
Allt að 30 mínútur á mánuði í minni breytingar á texta, myndum og upplýsingum. Ónotaður tími færist ekki á milli mánaða og þróunartímar fylgja ekki. Ef beiðni fer umfram það látum við vita og þú færð verð áður en vinna hefst.
Viðbótarvinna: 17.880 kr./klst. án VSK
Verk
Hannað út frá hverju fyrirtæki.
Umsagnir
Það sem viðskiptavinirnir segja.
Við erum í skýjunum með nýju heimasíðuna og hún er akkúrat að virka eins og við sáum fyrir okkur í upphafi. Við erum mjög ánægð með útkomuna!
GylfiHerjólfsgufan · herjolfsgufan.is Kann að meta hvað þú ert lausnarmiðaður, eftir að ég byrjaði að vinna með ykkur þá langar mig eiginlega að nota allar þjónustur ykkar og helst búa til öpp eða hugbúnað með ykkur!
Davíð MagnússonFönix · fonix.is Takk kærlega fyrir frábæra þjónustu! Ég þarf að setja aðra síðu í gang á þessu ári og hún verður klárlega hjá ykkur :)
Hafþór ÓskarssonGlóðin · glodin.is Veltan hjá okkur fjórfaldaðist á fyrsta árinu eftir að við tókum Basepark í notkun. Ein besta ákvörðun sem við höfum tekið fyrir reksturinn.
Björgvin E. SævarssonCarPark · carpark.isNotar Basepark
Ferlið
Einfalt ferli frá fyrsta fundi.
- 01
Greining
Við kynnumst fyrirtækinu, markmiðum þess og notendum og skipuleggjum efnið.
- 02
Hönnun
Við hönnum notendaferð og viðmót og förum yfir hönnunina með þér.
- 03
Smíði
Við forritum vefinn, setjum inn efni og prófum á öllum skjástærðum.
- 04
Í loftið
Vefurinn fer í loftið með mælingum, tæknilegu SEO og vöktun uppsettu.
- 05
Rekstur og þróun
Við rekum vefinn, framkvæmum breytingar og bætum hann jafnt og þétt.
Algengar spurningar
Finnurðu ekki svarið?
Einfaldur fyrirtækjavefur hentar afmörkuðum kynningarvef: allt að fimm síður á einu tungumáli, hönnun aðlöguð vörumerkinu og allt að 30 mínútur á mánuði í minni breytingar, á 19.900 kr./mán. án VSK og með 12 mánaða lágmarkstíma. Fyrirtækjavefur frá 34.900 kr./mán. er sérhannaður, rúmar meira efni og fleiri síðutegundir og inniheldur líka 20 klst. af þróun á ári, fimm á hverjum ársfjórðungi.
Já. Hver vefur byrjar á greiningu á fyrirtækinu, markmiðum þess, vörumerki og notendum. Út frá því skipuleggjum við efnið og notendaferðina og hönnum viðmótið. Útkoman er vefur gerður fyrir þitt fyrirtæki — ekki almennur vefur með þínu merki. Í Einföldum fyrirtækjavef aðlögum við hönnunina að vörumerkinu innan okkar eigin einingasafns.
Nei, við notum ekki keypt sniðmát. Í Fyrirtækjavef og stærri pökkum byggja útlit, uppbygging og framsetning á vörumerkinu, efninu og viðskiptavinunum ykkar. Einfaldur fyrirtækjavefur byggir á okkar eigin einingasafni, með hönnun sem er aðlöguð vörumerkinu. Þannig höldum við verðinu lágu án þess að slaka á hraða, öryggi eða gæðum.
Já. Þú greiðir ekkert sérstaklega fyrir greiningu, hönnun, smíði eða uppsetningu. Þess í stað greiðir þú fast mánaðargjald með lágmarkstíma: 12 mánuðum í Einföldum fyrirtækjavef og Lítilli netverslun og 24 mánuðum í öðrum vefpökkum. Ef þú þarft sérsmíði umfram pakkann færðu verð í hana áður en vinna hefst. Fyrsti mánuðurinn greiðist við staðfestingu pöntunar og telst fyrsti mánuður samningstímans. Næsta greiðsla kemur þegar vefurinn fer í loftið, en þó í síðasta lagi 30 dögum eftir að vefurinn er tilbúinn til efnisinnsetningar ef efni eða samþykki frá þér tefst.
Já. Í Fyrirtækjavef og stærri pökkum eru daglegar breytingar innifaldar — textar, myndir, nýjar fréttir, uppfærðar upplýsingar, nýjar síður byggðar á núverandi síðutegundum og minni útlitsbreytingar. Að auki eru 20 klst. af þróun á ári innifaldar (5 klst. á hverjum ársfjórðungi), sem má nýta í nýja virkni, umbætur á notendaupplifun eða minni tengingar. Þú sendir okkur beiðni og við sjáum um framkvæmdina. Í Einföldum fyrirtækjavef og Lítilli netverslun eru innifaldar allt að 30 mínútur á mánuði í minni breytingar á texta, myndum og upplýsingum.
Þú leggur til grunntexta, merki og myndir sem má nota. Við sjáum um innsetningu, snið, létta textayfirferð og myndabestun. Allt að 30 mínútur á mánuði í minni breytingar eru innifaldar og ónotaður tími færist ekki á milli mánaða. Villur í afhentri útfærslu lögum við án þess að það gangi af þeim tíma. Ný síða í núverandi síðutegund eða venjulegur tengill, til dæmis á bókunarkerfi, kallar ekki sjálfkrafa á stærri pakka — við metum það út frá vinnunni og þú færð verð fyrir fram. Lénagjöld, pósthólf og aðkeypt leyfi eru ekki innifalin nema um það sé samið, og 20% afsláttur af vef og markaðssetningu saman á ekki við þennan pakka.
Flestir vefir fara í loftið á 2–6 vikum frá því að hönnunarvinna hefst. Tíminn fer eftir umfangi og því hversu fljótt efni, textar og myndir liggja fyrir.


