Um okkur

Við sjáum um vefinn. Þú um reksturinn.

Vefsíða hefur hannað og smíðað vefi fyrir íslensk fyrirtæki í 20 ár. Á þeim tíma höfum við séð sama mynstrið endurtaka sig: fyrirtæki kaupa vef, hann eldist og nokkrum árum síðar byrjar allt upp á nýtt. Þess vegna bjóðum við vefi í áskrift — hannaða fyrir hvert fyrirtæki og rekna af okkur.

Teymið

Reynslumikið teymi. Full ábyrgð.

Við erum íslenskt teymi hönnuða og forritara. Þú talar beint við fólkið sem hannar, smíðar og rekur vefinn þinn — ekki við milliliði.

Hluti teymisins starfar erlendis, í Barcelona, Kaupmannahöfn og New York, en þjónustan er íslensk og á íslensku.

Við nýtum nýjustu tækni til að vinna hraðar og betur. Hönnunarákvarðanir, gæðamat og ábyrgð á lokaútkomunni eru alltaf í höndum fólks.

Síðan 2006

Við höfum hannað og smíðað vefi fyrir íslensk fyrirtæki í um tvo áratugi.

Íslenskt teymi

Hönnuðir og forritarar sem þú talar beint við, á íslensku. Enginn milliliður og ekkert miðakerfi.

Eigin kerfi

vCore, vMarketing, Stats, Mottó og Spjallbox eru smíðuð af okkur. Við þurfum ekki að bíða eftir neinum öðrum.

Tæknileg ábyrgð

Villuvöktun, öryggi og uppfærslur eru á okkar ábyrgð — ekki þinni.

Helstu tengiliðir

Fólkið sem heldur utan um rekstur, fjármál og tæknilega þróun.
  • Hafsteinn

    Framkvæmdastjóri

    Heldur utan um samninga, verð og þjónustu við viðskiptavini. Talaðu beint við Hafstein ef þú vilt ræða nýjan vef.

    hafsteinn@vefsida.is
  • Valdi

    Fjármál og bókhald

    Sér um reikninga, samninga og greiðslur. Hafðu samband ef eitthvað er óljóst á reikningi.

    bokhald@novamedia.is
  • Alexander

    Tæknilegur leiðtogi / Lead Developer

    Ber ábyrgð á tæknilegri útfærslu, vCore, hýsingu og öryggi allra vefja sem við rekum.

    alexander@vefsida.is

Vörumerkin okkar

Rétta leiðin fyrir hvert fyrirtæki.

Vefsíða er þjónusta frá Novamedia ehf. Ekki þurfa öll fyrirtæki sömu lausnina, og þess vegna rekum við fleiri en eitt vörumerki.
  • Vefsíða

    Við hönnum, smíðum og rekum vefinn fyrir þig.

    Þú ert hér
  • Model

    Fyrir þá sem vilja búa til fyrirtækjavef sjálfir.

  • Cartico

    Fyrir þá sem vilja stofna og reka netverslun sjálfir.

  • Novamedia

    Sérsmíðaður hugbúnaður, kerfi og tæknilausnir.

Meðal viðskiptavina

  • Nathan og Olsen
  • Hjallastefnan
  • Tjarnarskóli
  • Rauði krossinn
  • Vélaland
  • Ásbjörn
  • Landsbókasafn
  • Gunnars
  • Bubbi
  • Dufland
  • Gorilla vöruhús
  • Hagvangur
  • CarPark
  • Tryggingavernd
  • Brimborg
  • Fönix
Rekstraraðili
Novamedia ehf.
Kennitala
540606-2260
Laus störf